Fréttir
Brekkusöngurinn í beinu streymi
30. júlí 2026

Njóttu stemningarinnar frá Herjólfsdal heima í stofu. Bein útsending hefst kl. 19:30 sunnudaginn 2. ágúst með upphitun frá Dadda Diskó, tónleikum Gosanna og góðra gesta og Brekkusöngnum sjálfum undir stjórn Ágústs Þórs Brynjarssonar.
Hægt er að kaupa aðgang að streyminu beint í gegnum myndlykil Sýnar eða í vefsjónvarpinu fyrir þá sem nota SÝN Sjónvarps appið. Útsending hefst kl 19:30 og dagskrá hefst kl 20:30.
Dagskrá kvöldsins:
19:30 - Upphitun: Daddi diskó fær til sín góða gesti og hitar upp fyrir tónlistarveislu
20:30 - Tónleikar með Gosunum og gestum. Pálmi Gunnarsson - Klara Elias - Jón Jónsson- Birgitta Haukdal - Matti Matt
23:15 - Brekkusöngurinn - Ágúst Þór Brynjarsson mun stýra Brekkusöngnum í ár.
Það er meiri stemning að vera með Sýn, Góða skemmtun!
Leiðbeiningar
Hvernig kaupi ég miða á streymið í myndlykli Sýnar? Einungis er hægt að kaupa miða beint í myndlyklinum og í SÝN Sjónvarps appinu.
Svona gerir þú það í myndlyklinum:
Með því að ýta á MENU takkanum á fjarstýringunni og fara þannig í valmynd á myndlykli. Þar ættu tónleikarnir að birtast undir Viðburðir ef flett er örlítið niður í valmynd.
Velja viðburðinn, samþykkja skilmála og staðfesta kaup.
Með því að staðfesta kaup virkjast tímabundin opnun á rás 900. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
Viðburðinn verður aðgengilegur á rás 900 og mun sú rás opnast fljótlega eftir að kaup hafa verið kláruð.
Kaupin munu birtast á reikningi þínum um næstu mánaðamót.
Svona gerir þú þetta ef þú ert með SÝN Sjónvarps appið:
Það þarf að fara inn á vefsjónvarp Sýnar og skrá sig þar inn með sama aðgang og notaður er í appinu.
Tónleikarnir eru undir Viðburðir á forsíðunni í valmyndinni.
Tónleikarnir verða aðgengilegir á rásinni „Brekkusöngur 2026“ í SÝN Sjónvarps appinu. Hún opnast á tónleikadeginum.
Spurt og svarað
Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Sýnar? Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.
Get ég horft á tónleikana með SÝN Sjónvarps appinu? Já, þú getur horft á tónleikana í SÝN Sjónvarps appinu. Ef þú ert ekki með myndlykil þá fara kaupin fram í gegnum vefsjónvarp Sýnar.
Ef ég kaupi miða get ég horft á sýninguna seinna / þegar mér hentar? Get ég horft á tónleikana oftar en einu sinni? Tónleikarnir verða aðgengilegir í gegnum tímaflakk á myndlyklum Sýnar í 48 klst eftir tónleika og 4 klst í SÝN sjónvarps appinu.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



