Fréttir
Friðrik Dór & SinfoniaNord í beinu streymi
Njóttu tónleikana heima í stofu! Sýn sýnir beint frá tónleikum Friðriks Dórs og SinfoniaNord í Eldborg í Hörpu laugardaginn 31. október.
29. október 2026

Hægt er að kaupa aðgang að streyminu beint í gegnum myndlykil Sýnar eða í vefsjónvarpinu fyrir þá sem nota SÝN Sjónvarps appið. Útsending hefst kl 19:30 og tónleikarnir hefjast kl 20:00. Aðgangur að streyminu kostar 5.990 kr. Leiðbeiningar
Hvernig kaupi ég miða á streymið í myndlykli Sýnar? Einungis er hægt að kaupa miða beint í myndlyklinum og í SÝN Sjónvarps appinu.
Svona gerir þú það í myndlyklinum:
Með því að ýta á MENU takkanum á fjarstýringunni og fara þannig í valmynd á myndlykli. Þar ættu tónleikarnir að birtast undir Viðburðir ef flett er örlítið niður í valmynd.
Velja viðburðinn, samþykkja skilmála og staðfesta kaup.
Með því að staðfesta kaup virkjast tímabundin opnun á rás 900. Þú gætir þurft að endurræsa myndlykilinn þinn.
Viðburðinn verður aðgengilegur á rás 900 og mun sú rás opnast fljótlega eftir að kaup hafa verið kláruð.
Kaupin munu birtast á reikningi þínum um næstu mánaðamót.
Svona gerir þú þetta ef þú ert með SÝN Sjónvarps appið:
Það þarf að fara inn á vefsjónvarp Sýnar og skrá sig þar inn með sama aðgang og notaður er í appinu.
Tónleikarnir eru undir Viðburðir á forsíðunni í valmyndinni.
Tónleikarnir verða aðgengilegir á rásinni „Friðrik Dór & SinfoniaNord Í Eldborg Hörpu“ í SÝN Sjónvarps appinu. Hún opnast á tónleikadeginum.
Spurt og svarað
Get ég spólað til baka eða pásað útsendinguna í myndlykli Sýnar? Já, hægt er að spóla til baka og pása á meðan útsendingu stendur.
Get ég horft á tónleikana með SÝN Sjónvarps appinu? Já, þú getur horft á tónleikana í SÝN Sjónvarps appinu. Ef þú ert ekki með myndlykil þá fara kaupin fram í gegnum vefsjónvarp Sýnar.
Ef ég kaupi miða get ég horft á tónleikana seinna / þegar mér hentar? Get ég horft á tónleikana oftar en einu sinni? Tónleikarnir verða aðgengilegir í gegnum tímaflakk á myndlyklum Sýnar í 48 klst eftir tónleika og 4 klst í SÝN sjónvarps appinu.
Það er betra að vera með Sýn
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík | Kennitala: 470905-1740 | VSK-númer: 91528



